fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

791. fundur stjórnar S.S.S.

Árið 2023, er fundur haldinn í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum miðvikudaginn 30. ágúst, kl. 8:00 í fundarsal Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, Skógarbraut 945, 262 Reykjanesbæ.

Mætt eru: Friðjón Einarsson, Anton Kristinn Guðmundsson, Guðmann Lúðvíksson, Sverrir Auðunsson og Berglind Kristinsdóttir sem jafnframt ritaði fundargerð.

Friðjón Einarsson formaður stjórnar setti fund og bauð fundarmenn velkomna á fundinn.

Dagskrá:

  1. Undirbúningur aðalfundar S.S.S. 2023.
    Stjórn S.S.S. lagði drög að dagskrá en aðalfundur S.S.S. verður haldinn í Fjölbrautaskóla Suðurnesja, laugardaginn 14.október.
  2. Fjárhagsáætlun S.S.S. 2023 – undirbúningur.
    Framkvæmdastjóra falið að vinna áætlunina áfram í samræmi við umræðu stjórnar og leggja fram á næsta stjórnarfundi.
  3. Tölvupóstur dags. 21.08.2023 frá Innviðaráðuneytinu vegna máls. nr. 151/2023, drög að reglugerð um íbúakosningu sveitarfélaga.
    Lagt fram til kynningar.
  4. Afrit af umsókn um styrk vegna svæðisbundins samráðs gegn ofbeldi og öðrum afbrotum á Suðurnesjum og til stofnunar á Velferðarmiðstöð Suðurnesja.
    Lagt fram til kynningar.
  5. Önnur mál.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 9:40.

Friðjón Einarsson Guðmann Lúðvíksson Anton K. Guðmundsson

Sverrir Auðunsson Berglind Krisitnsdóttir