fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Skráning í Markaðsstofu Reykjaness hafin

Aðild að Markaðsstofu Reykjaness veitir fyrirtækjum aukinn sýnileika í landshlutabæklingi Reykjaness, vefnum visitreykjanes.is og á samfélagsmiðlum Markaðsstofu Reykjaness. Jafnframt eru fyrirtæki sem eru aðilar að Markaðsstofu Reykjaness kynnt á ferðasýningum og landkynningarfundum innan og erlendis. Saman mynda fyrirtæki og stofnanir sveitarfélaga á Suðurnesjum sterka heild sem að kemur að kynningarmálum og mótun á ferðaþjónustu á Reykjanesskaganum.

Gjaldskrá Markaðsstofu Reykjaness tók breytingum fyrir árið 2018 en nýja gjaldskrá er hægt að nálgast á upplýsingavef Markaðsstofunnar.

Skráningu í Markaðsstofu Reykjaness skal skilað fyrir 23. febrúar 2018 vilji fyrirtæki fá skráningu í landshlutabækling Markaðsstofu Reykjaness fyrir árið 2018. Aðildargjöld verða innheimt á tímabilinu febrúar – mars 2018.

Ef einhverjar spurningar vakna við útfyllingu skráningarformsins hafið þá samband með tölvupósti: markadsstofa@visitreykjanes.is

Skráningareyðublað