fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Styrkir fyrir meistaranema

Byggðastofnun auglýsir styrki til meistaranema sem vinna að lokaverkefnum á sviði byggðaþróunar. Kostur er ef verkefnin hafa skírskotun til byggðaáætlunar. Til úthlutunar er allt að 1.000.000 kr. og stefnt er að því að veita allt að fjóra styrki. Í umsókn skal koma fram greinargóð lýsing á verkefninu, markmiðum þess og hvernig það styður við byggðaþróun. Umsækjendur þurfa að stunda meistaranám við viðurkenndan háskóla.

Sjá nánar:

Umsóknarfrestur er til miðnættis 1. nóvember 2023.

Byggðastofnun hefur frá árinu 2015 veitt styrki til meistaranema sem vinna að lokaverkefnum á sviði byggðaþróunar. Á heimasíðu stofnunarinnar má sjá yfirlit verkefna sem hafa verið styrkt.

Nánari upplýsingar veitir Hanna Dóra Björnsdóttir.

Netfang hannadora@byggdastofnun.is

Sími: 455 5454

Frá árinu 2015 hefur Byggðastofnun veitt styrki til meistaranema sem vinna að lokaverkefnum á sviði byggðaþróunar og hefur það verið kostur ef verkefnið hefur skírskotun til byggðaáætlunar.