Uppbyggingarsjóður Suðurnesja opnar fyrir umsóknir 1.11
Uppbyggingarsjóður Suðurnesja opnar fyrir umsóknir 1. nóvember 2024 og verður hægt að sækja um styrk til verkefna á Suðurnesjum fram til 5. desember n.k. kl. 15:00.
Tilkynnt verður um úthlutanir í janúar 2025 vegna verkefna sem unnin verða á árinu.
Þeir sem hlutu styrk úr Uppbyggingarsjóði 2024 eru hvattir til þess að skila inn lokaskýrslum áður en sótt er um aftur.