fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Verkefni innan Reykjanes Geopark hljóta styrk úr framkvæmdasjóði ferðamannastaða 2016

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða hefur úthlutað 647 milljónum til 37 verkefna um allt land og fóru þrír styrkir  til verkefna innan Reykjanes Geopark.
31. Reykjanes Geopark – Brimketill: Aðkoma og upplifunarsvæði
Kr. 25.600.000,- styrkur til framkvæmda við Brimketil í landi Grindavíkur á grundvelli samþykkts deiliskipulags. Um er að ræða bílastæði, stíga og útsýnispalla.
Vel undirbúið og mikilvægt verkefni vegna aðgengis og öryggis ferðamanna, og grunndvallarinnviða á sífellt fjölsóttari ferðamannastað. 
41. Sveitarfélagið Garður – Salernis- og hreinlætisaðstaða Garðskaga
Kr. 13.200.000,- styrkur vegna uppbyggingar á salernis-og hreinlætisaðstöðu við Byggðasafnið á Garðskaga.
Brýnt verkefni til uppbyggingar grunnaðstöðu á sívinnsælli áfangastað, ekki síst með tilliti til norðurljósaferða utan hefðbundins opnunartíma.
 
25. Minjastofnun Íslands – Selatangar. Endurbætur á aðgengi og aukin upplýsingagjöf
Kr. 1.380.000,- styrkur til endurbóta á aðgengi og aukinni upplýsingagjöf við friðlýsta minjastaðinn á Selatöngum í Grindavík.
Verkefnið gerir gönguleiðina og sjálfan minjastaðinn öruggari fyrir ferðamenn, auk þess að styðja við upplifun á svæðinu og eykur þannig líkur á góðri umgengni við minjar og náttúru.