fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

38 verkefni hlutu styrk úr Sprotasjóði skólaárið 2016-2017

Sprotasjóður er sameiginlegur fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla og er hlutverk hans að styðja við þróun og nýjungar í skólastarfi.

Úthlutað hefur verið úr Sprotasjóði mennta- og menningarmálaráðuneytisins fyrir skólaárið 2016-2017. Alls bárust 129 umsóknir til sjóðsins og var heildarupphæð umsókna rúmar 300 millj. kr. Veittir voru styrkir til 38 verkefna að upphæð rúmlega 60 millj. kr.

Leikskólinn Akur, Stóru-Vogaskóli og Fjölbrautarskóli Suðurnesja hlutu styrk úr sjóðnum, sjá nánar á heimasíðu Mennta-og Menningarmálaráðuneytisins.