fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Fundað með ráðherranefnd um ríkisfjármál

Bæjarstjórar sveitarfélaganna fjögurra ásamt framkvæmdastjóra Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum funduðu með ráðherranefnd um ríkisfjármál í Ráðherrabústaðnum í gærmorgun.
Fundarefnið var staða atvinnumála á Suðurnesjum. Spár gera ráð fyrir að atvinnuleysi á Suðurnesjum verði 17,6% í september en landsmeðaltal  verði 8,1%. Fundarmenn ræddu stöðuna í sveitarfélögunum og þær áskoranir sem þau standa frammi fyrir á komandi vetri.
Lagðar voru fram tillögur að verkefnum á Suðurnesjum sem hægt væri að fara í með skömmum fyrirvara og leiðum til úrbóta fyrir einstaklinga og fyrirtæki sem sóttvarnaraðgerðir vegna Covid 19 bitna hvað harðast á