fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Auglýst eftir umsóknum í innviðasjóð

Innviðasjóður auglýsir eftir umsóknum og er umsóknarfrestur til 1. nóvember 2023 kl. 15:00.

Hlutverk sjóðsins er uppbygging rannsóknainnviða á Íslandi.

Innviðasjóður veitir styrki til kaupa og uppbyggingar á tækjum, gagnagrunnum og hugbúnaði og öðrum þeim búnaði sem telst mikilvægur fyrir framfarir í rannsóknum.

Við úthlutun úr Innviðasjóði er tekið mið af úthlutunarstefnu Innviðasjóðs og eftirtalin atriði lögð til grundvallar:

  • Að innviðirnir séu mikilvægir fyrir framfarir í rannsóknum á Íslandi og fyrir rannsóknir umsækjenda.
  • Að fjárfesting í innviðum skapi nýja möguleika til rannsókna og/eða innviðirnir tengist verkefnum sem Rannsóknasjóður, markáætlun eða aðrir opinberir samkeppnisjóðir styrkja.
  • Að samstarf verði um nýtingu innviða milli stofnana eða milli stofnana og fyrirtækja með fyrirsjáanlegum hætti.
  • Að áætlanir um kostnað og fjármögnun séu raunhæfar.
  • Að innviðirnir auki möguleika á menntun og þjálfun á viðkomandi fræðasviði.
  • Innviðir sem komið er upp með styrk frá sjóðnum skulu vera aðgengilegir öðrum rannsóknahópum eftir því sem svigrúm er til og skal sjóðnum gerð grein fyrir hvernig aðgengi verður háttað.

Mikilvægt er að umsækjendur kynni sér reglur sjóðsins vel. 

Handbók Innviðasjóðs fyrir styrkárið 2024 má finna á vefsíðu sjóðsins.