fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Fjölmiðlar sem markaðstæki – morgunverðarfundur

Fimmtudaginn 15. janúar kl. 8.30, Merkinesi Hljómahöll, Reykjanesbæ• Radio Iceland, Hilmar Erlendsson kynnir og ræðir nýjan miðil sem er ætlaður fyrir erlenda ferðamenn og miðaður við þeirra þarfir.• Kynning á Suðurnesja Magasín. Vefsjónvarp Víkurfrétta hefur farið víða um Reykjanesskagann og tekið upp þætti sem miða að menningu, mannlífi og fyrirtækjum á svæðinu.• Fjölmiðlar, undirbúningur og framkoma. Freyr Hákonarson markaðsstjóri frá markaðs- og auglýsingastofunni Árnasynir fer yfir hvernig við getum nýtt okkur fjölmiðla í markaðssetningu.Fundurinn er öllum opinn og verður boðið uppá léttan morgunverð.
Vinsamlegast skráið þátttöku hér.
Nánari upplýsingar gefur Þuríður Aradóttir, verkefnastjóri Markaðsstofu Reykjaness, thura@visitreykjanes.is.