fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Hæfnihringir fyrir konur á landsbyggðinni

Heklan, atvinnuþróunarfélag Suðurnesja býður konum á Suðurnesju þátttöku í hæfnihringjum sem er samstarfsverkefni atvinnuþróunarfélaga og landshlutasamtaka á landsvísu með það að markmiði að efla frumkvöðlakonur.

Hæfnihringir eru byggðir á aðferðafræði, sem kallast aðgerðanám, en það grundvallast á því að nota raunverulegar áskoranir, verkefni og tækifæri sem grunn fyrir lærdóm. Markmiðið er að aðstoða frumkvöðlakonur við að komast yfir hindranir með því að styrkja hæfni og færni þeirra, veita stuðning í formi fræðslu og hagnýtra tækja til eflingar og hvatningar ásamt því að efla tengslanet þeirra.

Hringjunum er stýrt af leiðbeinendum í gegnum Zoom, sem er gjaldfrjálst netforrit. Fundirnir verða haldnir einu sinni í viku, í sex skipti samtals en þá tekur við regluleg eftirfylgni á fundum og í lokuðum Facebook hóp. Fyrsti fundurinn verður fyrstu vikuna í febrúar kl. 14:30 – 16:00 og verður dagsetning auglýst síðar.

  • Deildu þínum áskorunum, verkefnum og tækifærum með öðrum konum og fáðu ráðleggingar á jafningjagrundvelli.
  • Vertu í mátulega krefjandi en samt öruggu umhverfi þar sem hugmyndir geta verið reyndar og þróaðar.
  • Stækkaðu tengslanet þitt með konum, sem eru í svipuðum sporum og þú.

Frumkvöðlakonur á Suðurnesjum sem hafa áhuga á þátttöku geta skráð sig hér en opið verður fyrir skráningar til 20. janúar.

Nánari upplýsingar veita ráðgjafar Heklunnar Dagný Maggýjar og Logi Gunnarsson.