fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Hágæða grænar samgöngur: RVK – KEF

Reykjavíkurborg, Innviðaráðuneytið, Kadeco, Svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins og Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum standa sameiginlega að opnum fundi um góðar og umhverfisvænar samgöngur milli alþjóðaflugvallarins í Keflavík og höfuðborgarsvæðisins. Ræða á sameiginlega framtíðarsýn, raunhæfni og mögulegar lausnir á þeim áskorunum sem blasa við. Erlendir gestafyrirlesarar gefa innsýn í svipuð verkefni sem borgir í Evrópu hafa ráðist í og einnig verður tekinn púls á þeim möguleikum sem bjóðast hjá aðilum sem vinna um allan heim að stórum innviðaverkefnum með áherslu á vistvænni samgöngur.

Fundurinn verður haldinn í Salnum í Kópavogi fimmtudaginn 12. október, kl. 13 – 17. Gestir eru beðnir um að skrá sig á dagskrársíðu viðburðarins: Opinn fundur um samgöngur til KEF.  

Dagskrá fundar:

13:00-13:05      Velkomin
                            Fundarstjóri Lilja G. Karlsdóttir, samgöngusérfræðingur

13:05-13:20      Hágæðasamgöngur fyrir heimsborg  

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri 

13:20-13:35      Í átt að öflugri og kolefnishlutlausum almenningssamgöngum til Keflavíkurflugvallar

Gyða Mjöll Ingólfsdóttir, verkefnastjóri samgönguáætlunar hjá Innviðaráðuneytinu 

13:35-13:50       Þróunaráætlun Kadeco K64 – Keflavik Reykjavik Link KRL

Samúel Torfi Pétursson, þróunarstjóri hjá Kadeco  

13:50-14:05       Sagan og staðan – flugrúta, fluglest og fleiri hugmyndir
Lilja G. Karlsdóttir, samgöngusérfræðingur
  

14:05-14:35       Pallborð: Hver eru næstu skref?  
Þátttakendur í pallborði:  
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri 
Árni Freyr Stefánsson, Innviðaráðuneytið 
Samúel Torfi Pétursson, Kadeco 
Bryndís Friðriksdóttir, Vegagerðin 
Umræðustjóri: Lilja G. Karlsdóttir, samgöngusérfræðingur 
  

 14:35-14:50     Hlé         

 Dagskrá eftir hlé fer fram á ensku.

14:50-15:10       Val á samgöngulausnum – flugvallartengingar og reynslusögur  
Thomas Potter, technical expert, Norconsult heldur erindi á ensku 

15:10-15:25       Grænni og snjallari samgöngur um allan heim  
Carl Åge Björgan, framkvæmdastjóri Alstom í Noregi og Íslandi heldur erindi á ensku

15:25-15:45       Tengingin milli Helsinki og Vantaa flugvallarins  
Henry Westlin, borgarverkfræðingur Vantaa heldur erindi á ensku 

15:45-16:10      Pallborð: Hvernig gæti framtíðin litið út?

Þátttakendur í pallborði: Thomas Potter, Carl Åge Björgan og Henry Westlin.

Stjórnandi: Lilja G. Karlsdóttir, samgöngusérfræðingur.

Seinni pallborðsumræður fara fram á ensku. 

16:10-16:15      Lokaorð  

16:15-17:00      Tengslamyndun og léttar veitingar

Tengt efni: