Opið fyrir styrki í Uppbyggingarsjóðu Suðurnesja
Uppbyggingarsjóður Suðurnesja hefur opnað fyrir umsóknir um styrki fyrir árið 2023.
Uppbyggingarsjóður Suðurnesja er hluti af Sóknaráætlun Suðurnesja og er í umsjón Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum. Markmið hans er að styðja við verkefni sem efla fjölbreytileika atvinnulífs á Suðurnesjum, menningarstarfsemi og atvinnuskapandi verkefni á svæðinu.
- Atvinnuþróunar- og nýsköpunarstyrkir
- Verkefnastyrkir á menningarsviði
- Stofn- og rekstrarstyrkir á menningarsviði
Umsóknarfrestur er til 10. nóvember 2022.
Hægt er að skoða úthlutunarreglur og leiðbeiningar við gerð umsókna hér.
Góð umsókn eykur möguleika umsækjenda á að fá styrk úr sjóðnum svo mikilvægt er að vanda vel til verka.
Frekari upplýsingar veitir verkefnastjóri Logi Gunnarsson á netfanginu logi@sss.is og í síma 420 3294.