fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Opinn kynningarfundur

Uppbyggingarsjóður Suðurnesja býður til opins kynningarfundar í Kvikunni í Grindavík 12. október kl. 12:00 – 13:00.

Opnað verður fyrir umsóknir um styrki fyrir árið 2024 þann 15. október og verða reglur og  áherslur sjóðsins kynntar auk þess sem gestum gefst kostur á því að spyrja spurninga.

Uppbyggingarsjóður Suðurnesja er hluti af Sóknaráætlun Suðurnesja og er í umsjón Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum. Markmið hans er að styðja við verkefni sem efla fjölbreytileika atvinnulífs á Suðurnesjum, menningarstarfsemi og atvinnuskapandi verkefni á svæðinu.

Umsóknir skulu berast fyrir 15. nóvember 2023.

Fundurinn verður einnig á netinu fyrir þá sem komast ekki á staðinn en skrá þarf þátttöku hér.