Opnað fyrir styrki til atvinnumála kvenna
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki til atvinnumála kvenna og verður umsóknarfrestur til og með 11.mars.
Hámarksstyrkur 4 milljónir en hægt er að styrkja helming kostnaðar verkefnis.
Hægt verður að sækja um styrki til vöruþróunar, markaðssetningar og gerðar viðskiptaáætlana (600.000).
Að þessu sinni eru ungar konur, landsbyggðarkonur og konur af erlendum uppruna hvattar sérstaklega til að sækja um.