Reykjanes á alþjóðlegan jarðminjalista
Eldstöðin Reykjanes er komin á lista Alþjóðajarðfræðisambandsins (IUGS) yfir 100 merka jarðminjastaði á jörðinni.
Þetta var kynnt á alþjóðlegri jarðfræðiráðstefnu sem haldin var nýverið í Busan í Suður-Kóreu en að auki fékk Vatnajökull sæti á listanum.
Markmið með útgáfu jarðminjalista er að vekja athygli á mikilvægi jarðminja til fræðslu og þekkingar og stuðla að varðveislu merkra jarðminjastaða.
Þurfa að hafa mikið alþjóðlegt vísindagildi
Þetta er í annað sinn sem IUGS tekur saman lista yfir merka jarðminjastaði og nefnist hann „The Second 100 IUGS Geological Heritage Sites“ . Fyrsti listinn var birtur á 60 ára afmælishátíð sambandsins árið 2022 undir heitinu „The First 100 IUGS Geological Heritage Sites“. Jarðminjastaðirnir eru birtir rafrænt og einnig í bókarútgáfu. Ráðgert er að listar IUGS verði þrír og mun sá þriðji birtast á árinu 2026.
Náttúrufræðistofnun tilnefndi eldstöðina Reykjanes á jarðminjalista IUGS sem alþjóðlegan mikilvægan jarðminjastað vegna tengingar hans við Mið-Atlantshafshrygginn. Alþjóðlegt samband landmótunarfræðinga tilnefndi Vatnajökul sem alþjóðlega mikilvægan jarðminjastað vegna samspils jökuls og eldvirkni.
Til að komast á jarðminjalista IUGS þurfa jarðminjastaðir að hafa mikið alþjóðlegt vísindagildi, þeir eru heimsins bestu dæmi um ákveðin myndunar- og mótunarferli, þetta eru staðir þar sem gerðar hafa verið merkar jarðfræðilegar uppgötvanir t.d. um sögu jarðar, eða staðir þar sem rannsóknir hafa stuðlað að þróun jarðfræði sem vísindagreinar. Umfjöllun um jarðminjar má sjá á vef IUGS.
UNESCO, Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna viðurkenndi Reykjanes sem UNESCO Global Geopark árið 2015. UNESCO Global Geoparks eru svæði þar sem minjum og landslagi sem eru jarðfræðilega mikilvægar á heimsvísu er stýrt eftir heildrænni stefnu um verndun, fræðslu og sjálfbæra þróun.