fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Fundi frestað vegna slæmrar veðurspár -Reykjanesskaginn á krossgötum

Tekin hefur verið ákvörðun um að fresta fundinum sem átti að vera í dag, miðvikudaginn 31. janúar kl. 17:00 vegna slæmrar veðurspár. Ný dagsetning verður send út á morgun.

Hver er staðan og hvað hefur verið gert til að bregðast við þeim áskorunum sem atvinnulíf á Suðurnesjum stendur frammi fyrir?
Hver er staða orku- og vatnsmála á svæðum utan Grindavíkur?

Reykjanesskaginn á krossgötum, þróun atvinnulífs í breyttu landslagi er yfirskrift opins fundar sem atvinnurekendum á Suðurnesjum er boðið til í Stapa, Hljómahöll miðvikudaginn 31. janúar kl. 17 – 19:00.

Kynningar verða frá:

  • HS veitum – Páll Erland, forstjóri
  • HS Orka – Tómas Már Sigurðsson, forstjóri
  • Landsnet – Halldór Halldórsson, öryggisstjóri
  • Veðurstofa Íslands – Benedikt Halldórsson, fagstjóri Jarðskjálftavár

Atvinnurekendur á á Suðurnesjum eru hvattir til að mæta.

Fundarstjórar verða Berglind Kristinsdóttir og Guðmundur Gunnarsson.
Fundinum verður streymt beint á Facabook síðu Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum og Víkurfrétta.