fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Suðurnesjavaktin í loftið

Suðurnesjavaktin hefur sett í loftið vefsíðu þar sem finna má upplýsingar um hina ýmsu þjónustu og fleira sem er í boði fyrir íbúa á Suðurnesjum. Má þar nefna þjónustu á vegum sveitarfélaganna, framboð á íþrótta- og tómstundastarfi, upplýsingar um atvinnumál, fjármál, virkni- og starfsendurhæfingaúrræði og ýmislegt fleira.Þar með lýkur formlegri starfsemi Suðurnesjavaktarinnar en hún starfaði á Suðurnesjum á vegum velferðarvaktar velferðarráðuneytisins á árunum 2011-2013 en hlutverk hennar er að fylgjast með félagslegum jafnt sem fjárhagslegum afleiðingum bankahrunsins fyrir fjölskyldur og einstaklinga í landinu.
Á starfstíma Suðurnesjavaktarinnar var tekinn saman bæklingurinn Úrræði og athafnir á Suðurnesjum á sviði velferðarmála en hann hefur nú verið þróaður áfram í þennan upplýsingavef.  Hlutverk vefsins er að auðvelda íbúum á Suðurnesjum að leita sér upplýsinga um hina ýmsu þjónustu, íþrótta- og tómstundastarf, samgöngur, heilbrigði, trúfélög og fleira sem er til staðar á svæðinu.Vefur Suðurnesjavaktarinnar