Starfstímabil Svanna-lánatryggingasjóðs kvenna framlengt til ársins 2029
Samþykkt hefur verið að framlengja starfstímabil Svanna-lánatryggingasjóður kvenna um fjögur ár, eða til ársins 2029. Sjóðurinn gegnir mikilvægu hlutverki í að styðja við frumkvöðlastarf og atvinnuuppbyggingu kvenna um allt land.
Nú er opið fyrir umsóknir í sjóðinn og er umsóknarfrestur að þessu sinni til 15. mars. Sótt er um á nýrri heimasíðu verkefnisins, www.svanni.is, þar sem jafnframt má finna nánari upplýsingar um skilyrði og umsóknarferli.
Markmið sjóðsins er að efla atvinnustarfsemi kvenna með því að bæta aðgengi þeirra að fjármögnun og styðja við uppbyggingu fyrirtækja í eigu kvenna, bæði þeirra sem eru í mótun og í vexti.
Í tengslum við framlengingu starfstímabilsins birtist nýverið viðtal við Guðrúnu Tinnu Ólafsdóttur, formann sjóðsins, þar sem fjallað er um mikilvægi verkefnisins og áhrif þess á atvinnulíf kvenna. Viðtalið birtist í blaði Félag kvenna í atvinnurekstri og er einnig aðgengilegt á vef mbl.is.
Við hvetjum fyrirtæki í eigu kvenna á Suðurnesjum og víðar til að kynna sér tækifærin sem sjóðurinn býður upp á og sækja um fyrir 15. mars.