fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Umsóknarfrestur Matvælasjóðs framlengdur

Umsóknarfrestur Matvælasjóðs hefur verið framlengdur fram til 26. apríl 2022.

Þetta er í þriðja sinn sem sjóðurinn auglýsir úthlutun og er heildarúthlutunarfé sjóðsins 593 milljónir króna.

Hlutverk Matvælasjóðs er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla og hliðarafurða úr landbúnaðar- og sjávarafurðum. Áhersla er á nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskrar matvæla um land allt. Sjóðnum er einnig heimilt að styðja við vöruþróun og markaðssókn á erlendum mörkuðum. Sjóðurinn fylgir eftir heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Í þessum tilgangi styrkir sjóðurinn verkefni og rannsóknir einstaklinga og lögaðila.

Markmið sjóðsins er að ná til verkefna á öllum stigum, allt frá hugmyndum til markaðssetningar og hagnýtra rannsókna. Ráðstöfunarfé Matvælasjóðs samanstendur af fjárveitingu af fjárlögum hverju sinni og öðrum tekjum eftir því sem þeim er til að dreifa. Allar upplýsingar um sjóðinn má finna hér á heimasíðu hans.

Verkefnastjórar Heklunnar veita aðstoð og ráðgjöf við styrkumsóknir og er hægt að panta tíma hér.