fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Uppbyggingarsjóður opnar fyrir styrkumsóknir 3. október

Uppbyggingarsjóður Suðurnesja opnar fyrir umsóknir mánudaginn 3. október og er umsóknarfrestur til miðnættis 10. nóvember. 


Rafræn umsóknargátt
Tilgangur Uppbyggingarsjóðs Suðurnesja er að styrkja menningar-, atvinnu- og nýsköpunarverkefni á Suðurnesjum. Sótt er um á rafrænni umsóknargátt island.is en frekari upplýsingar má finna á vef Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum og allt um Uppbyggingarsjóð.

Við hvetjum þá sem hyggjast sækja um styrk í sjóðinn að hefja undirbúning tímanlega en góð og vönduð umsókn eykur líkur á árangri.

Kennslumyndband
Hér má sjá kennslumyndband  sem Uppbyggingarsjóður hefur látið gera fyrir umsækjendur.


Kynnið ykkur jafnframt vel reglur og áherslur sjóðsins.