fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Verkefnastjóri – Laust starf

Heklan, Atvinnuþróunarfélag Suðurnesja, leitar að kraftmiklum starfsmanni í krefjandi starf verkefnisstjóra um stofnun og þróun jarðvangs á Reykjanesi. Um er að ræða tímabundna ráðningu til 31.12.2013. Verkefnið felst í því að leiða vinnu við stofnun jarðvangs á Reykjanesi. Verkefnisstjóri tekur þátt í að skapa og ýta úr vör áhugaverðu þróunarverkefni í ferðaþjónustu og vísindastarfi á Reykjanesi.

HÆFNISKRÖFUR 

  • Háskólapróf sem nýtist í starfi 
  • Lipurð í mannlegum samskiptum 
  • Framúrskarandi skipulagshæfni 
  • Frumkvæði og sveigjanleiki í starfi 
  • Reynsla af verkefnastjórnun 

Nánari upplýsingar veitir Berglind Kristinsdóttir framkvæmdastjóri í síma 420 3288 eða berglind@sss.is. Umsóknir skulu berast skrifstofu Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, Skógarbraut 945, 235 Reykjanesbæ, eða á berglind@sss fyrir 12. mars.