fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Verkefnastyrkir Vaxtarsamnings Suðurnesja

Auglýst er eftir styrkumsóknum til Vaxtarsamnings Suðurnesja á grundvelli samnings milli Iðnaðarráðuneytis og Atvinnuþróunarráðs Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum.Styrkhæf verkefni eru þróunar- og nýsköpunarverkefni sem markvisst stefna að markaðssetningu nýrrar eða endurbættrar vöru eða þjónustu. Skilyrði úthlutunar er að viðkomandi verkefni feli í sér samstarf þriggja eða fleiri fyrirtækja og falli að markmiðum samningsins sem og verklagsreglum um úthlutun. Styrkir geta verið allt að 50% af styrkhæfum kostnaði einstakra verkefna, gegn mótframlagi þátttakenda.Skilgreining á styrkhæfum kostnaði, umsóknareyðublöð og aðrar upplýsingar er að finna hér.
Umsóknarfrestur er til kl. 16:00 mánudaginn 30. september. Umsóknum skal skilað á netfangið vaxtarsamningur@heklan.is.Nánari upplýsingar veitir Björk Guðjónsdóttir verkefnastjóri, bjork@heklan.is, sími 420 3288.