fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Viðskiptalíkanið á hádegisfyrirlestri í Eldey

Vilbert Gústavsson viðskiptafræðingur mun fjalla um Viðskiptamódelið á næsta hádegisfyrirlestri í Eldey á morgun þriðjudaginn 13. nóvember og hvernig það getur hjálpað sprotafyrirtækjum og frumkvöðlum við að móta viðskiptahugmynd eða nýja vöru.
Til að frumkvöðull nái árangri í nýsköpun þarf hann ekki einungis að koma fram með lausnir, heldur einnig viðskiptalíkan sem hæfir viðfangsefninu og sýnir skilning á valkostunum sem hann stendur frammi fyrir við skipulagningu fyrirtækis. Ef viðskiptalíkanið er ekki vel útfært mun frumkvöðli mistakast að koma sínum lausnum á framfæri við viðskiptavini og hafa af því viðurværi.
Vilbert er einn af frumkvöðlunum í Eldey og er sjálfstætt starfandi fyrirtækjaráðgjafi.Fyrirlesturinn hefst kl. 12:00 og stendur til 12:45.