fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Málefni fatlaðra flytjast til sveitarfélaganna

Málefni fatlaðra fluttust alfarið til sveitarfélaganna um áramótin.  Sveitarfélögin á Suðurnesjum mynda sameiginlegt þjónustusvæði.  Þjónustusvæðið fellur undir stjórn SSS en sérstakt þjónusturáð er hins vegar skipað félagsmálastjórum á svæðinu ásamt fulltrúa fatlaðra.  Þjónusturáðið sér um daglega umsýslu.

Samstarfið felur í sér samræmingu og uppbyggingu sérhæfðrar þjónustu á svæðinu.  Öll almenn þjónusta við fatlaðra verður hjá félagsþjónustu sveitarfélagnna, ásamt annarri félagslegri þjónustu.  Þannig verður samþætting best tryggð auk þess sem viðskiptavinir þurfa ekki að fara á marga staði með sín erindi.

Þessi mynd var tekin í Heiðarholti í Garði, við undirritun samningsins um samstarf sveitarfélagnna.  Í Heiðarholti er rekin skammtímavistun en sú þjónusta er til marks um þann rekstur sem samstarf sveitarfélagnna felur í sér.