fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Kaffihúsakvöld í Eldey á fimmtudaginn

Fimmtudagskvöldið 1. nóvember ætla frumkvöðlar og hönnuðir í Eldey á Ásbrú að bjóða til Kaffihúsakvölds frá kl 20-22.
Kl 20.15 mun Ásdís Ragna Einarsdóttir segja frá því sem grasalæknir fæst við. Ásdís er með BSc í grasalækningum frá University of East London og hefur haldið fyrirlestra og námskeið um allt land auk þess sem hún rekur viðtalsstofu.
Markmið hennar er að aðstoða fólk í að efla heilsu sína með breyttu mataræði, heilbrigðum lífsstíl og notkun lækningajurta og vinna sameiginlega í átt að góðri heilsu til frambúðar.
Frumkvöðlar og hönnuðir sýna verk sín og eru vinnustofur opnar að fyrirlestri loknum.
Kaffi og heimabakað á staðnum gegn frjálsu framlagi.Athugið að það er aðeins tekið við peningum, enginn posi á staðnum.