Atvinnuuppbygging og þróun íbúðamarkaðar á Suðurnesjum
Þriðjudaginn 28. nóvember verður haldinn opinn fundur um atvinnuuppbyggingu og þróun íbúðamarkaðar á Suðurnesjum.
Fundurinn verður haldinn á Courtyard by Marriott í Reykjanesbæ kl. 11:30 og er opinn öllum. Fundurinn er hluti af fundaröð ýmissa aðila sem láta sig varða atvinnu og byggðaþróun í landsbyggðunum. Að fundinum standa Byggðastofnun, HMS, Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið, Samtök iðnaðarins og er hann haldinn í samstarfi við Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum.
Á fundinum verður fjallað um atvinnuþróun í landsbyggðunum, stöðuna á íbúðamarkaði, stafræn byggingarleyfi, nýsköpunarstyrki, hagkvæmni og skilvirkni í íbúðauppbyggingu og þau lánaúrræði sem standa til boða bæði hvað varðar rekstur og íbúðaruppbyggingu.
Húsið opnar kl. 11:15 og verður boðið upp á léttar veitingar meðan á fundi stendur. Fundargestum er boðið samtal við frummælendur eftir fundinn.
Fundarstjóri er Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, forseti bæjarstjórnar í Reykjanesbæ.
Við bjóðum öll velkomin og hlökkum til að sjá ykkur 28. nóvember.
![](https://sss.is/wp-content/uploads/2023/11/404236707_653135013659082_3243439926880600978_n.jpg)