fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Fræðsludagskrá vetrarins í samstarfi við Kaupfélag Suðurnesja

Kaupfélag Suðurnesja og Heklan, atvinnuþróunarfélag Suðurnesja hafa gert með sér samkomulag um sameiginlega fræðsludagskrá í vetur sem miðar að því að auka þekkingu og samkeppnisfærni á Suðurnesjum.

Boðið verður upp á fjölbreyttar kynningar, námskeið og vinnustofur sem henta jafnt frumkvöðlum, fyrirtækjum í nýsköpun, fyrirtækjum í ferðaþjónustu, samtökum og almenningi sem vill bæta við sig þekkingu

“Eitt af markmiðum Kaupfélags Suðurnesja er að vera hreyfiafl framfara. Með fjölbreyttu fræðslustarfi fyrir almenning, samtök og atvinnulíf stuðlum við að sterkara samfélagi. Verum minnug þess að góðir hlutir gerast vegna skipulags en slæmir hlutir yfirleitt af sjálfu sér”, segir Skúli Skúlason formaður Kaupfélagsins.

Undir þetta tekur Dagný Gísladóttir verkefnastjóri hjá Heklunni og bætir við að kynningarnar skapi jafnframt tækifæri á samtali og tengslamyndun sem sé ekki síður mikilvægt.

Enginn aðgangseyrir er á fræðslufundina sem haldnir verða í hádeginu á þriðjudögum í fundarsal Krossmóa og boðið verður upp á léttar veitingar. Einnig verður boðið upp á námskeið og vinnustofur sem nánar verður auglýst síðar.

Hægt verður að nálgast upplýsingar um dagskrána á heklan.is og ksk.is og á samfélagsmiðlum.