Fríar vinnustofur til að efla stafræna miðla
Nýsköpunarmiðstöð Íslands býður upp á Stafrænt forskot, vinnustofu fyrir fyrirtæki á landsbyggðinni til að efla stafræna miðla á netinu og er hún þátttakendum að endurgjaldslausu í apríl og maí.
Stafrænt forskot er bæði kennsluefni á netinu á forskot.nmi.is og vinnustofur sem settar hafa verið upp víða um landið. Þar fer fram kennsla í markaðssetningu á netinu og nýtingu samfélagsmiðla auk aðstoðar við stefnumótun í markaðsmálum.
Vinnustofurnar henta öllum litlum og meðalstórum fyrirtækjum sem vilja nýta samfélagsmiðla, leitarvélabestun eða stafrænar lausnir í bókunum, verslun eða þjónustu.
Fystu vinnustofurna voru haldnar í febrúar 2019 á nokkrum stöðum á landinu, þar á meðal á Reykjanesi. Nú hafa þær verið færðar yfir á netið vegna ástandsins í þjóðfélaginu. Eftir svona vinnustofur hafa fyrirtækin betri yfirsýn yfir markmið og stefnu í markaðsmálum.
Við hvetjum sem flesta til þess að nýta sér þetta tækifæri en hægt er að sækja um þátttöku hér.