Heilbrigðisstefna – opinn kynningarfundur
Opinn kynningarfundur um heilbrigðisstefnu fyrir íslenska heilbrigðisjónustu til ársins 2030 verður kynnt á Suðurnesjum þann 19. ágúst n.k. kl. 17 – 19 í fundarsal Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja í Reykjanesbæ.
Heilbrigðisstefna – stefna fyrir íslenska heilbrigðisþjónustu til ársins 2030 var samþykkt á Alþingi 3. júní síðastliðinn. Á fundinum verður fjallað um hvað felst í stefnunni, hvaða breytingar hún er líkleg til að hafa í för með sér og hvers vegna hún skiptir svo miklu máli, hvort heldur í þéttbýli eða dreifðari byggðum landsins.
Dagskrá:
- Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra – Kynning á heilbrigðisstefnu
- Markús Ingólfur Eiríksson forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja – Sýn forstjóra
- Alma D. Möller landlæknir – Heilbrigðisstefna frá sjónarhóli landlæknis
- Pallborð: Auk frummælenda taka þátt í pallborðsumræðunum þau Elsa B. Friðfinnsdóttir, skrifstofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu og Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar.
Fundarstjóri er Magnús Stefánsson bæjarstjóri Suðurnesjabæjar
Fundurinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis.