fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Hljóðritunarsjóður auglýsir eftir umsóknum

Hljóðritarsjóður auglýsir eftir umsóknum fram til 17. september kl. 16:00.

Hlutverk Hljóðritasjóðs er að efla hljóðritun á íslenskri tónlist.
Veittir eru styrkir til að taka upp nýja, frumsamda íslenska tónlist og þannig er stutt við nýsköpun hennar.

Hljóðritin skulu kostuð af íslenskum aðilum en mega einnig vera samstarfsverkefni við erlenda aðila.

Styrkir eru veittir til ákveðinna verkefna að hámarki til eins árs.

Umsóknum og lokaskýrslum skal skila á rafrænu formi.

Nánari upplýsingar á síðu Hljóðritasjóðs.