Kynningarfundur um fyrirtækjastyrki Tækniþróunarsjóðs
Kynningarfundur um fyrirtækjastyrki Tækniþróunarsjóðs verður haldinn fimmtudaginn 16. feb. nk. og verður í streymi á Teams.
Sérfræðingur frá Rannís mun kynna opinberan stuðning til nýsköpunarverkefna á vegum Tækniþróunarsjóðs og skattfrádráttar rannsókna- og þróunarverkefna .
Fundurinn er ætlaður væntanlegum umsækjendum fyrirtækjastyrkja Tækniþróunarsjóðs, þ.a.m.:
- einstaklingar
- lítil og meðalstór fyrirtæki
- háskólar
- opinberar rannsóknastofnanir
- opinber fyrirtæki
Fundinum verður streymt og verður hlekkur á streymi sendur þau sem skrá sig.