Málstofa um alþjóðlega hönnunarvernd
Fimmtudaginn 6. september 2012 stendur Einkaleyfastofan fyrir málstofu um hönnunarvernd í samstarfi við Alþjóðahugverkastofnunina. Meðal fyrirlesara er Grégoire Bisson, yfirmaður Haag skráningarkerfisins.
Málstofan er öllum opin og verður haldin á Háteig A, Grand Hótel, Sigtúni 8, Reykjavík. Aðgangur er ókeypis en þátttakendur eru beðnir að skrá sig á netfangið bergny@els.is eða í síma 580-9400.
Málstofan fer fram á ensku.
http://www.els.is/