Neyðarstigi lýst yfir vegna hættu á heitavatnsleysi á Suðurnesjum.
Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum, hafa ákveðið að fara upp á neyðarstig Almannavarna.
Heitavatnslögnin, stofnlögnin, sem flytur heitt vatn frá Svartsengi til Fitja í Reykjanesbæ er rofin sem veldur heitavatnsleysi á Suðurnesjum. Nú er mikilvægt að íbúar og fyrirtæki á Suðurnesjum spari allt rafmagn og heitt vatn.
Miðlunartankar geyma heitt vatn á svæðinu og nú þegar leiðslan er farin er það eina vatnið sem er eftir á svæðinu. Almannavarnir ítreka því mikilvægi þess að íbúar og fyrirtæki spari vatnið. Í markvissum sparnaði endast miðlunartankar væntanlega í 6 til 12 klukkustundir. Miðað við hefðbundna daglega notkun endast tankarnir í 3 til 6 klukkustundir.
Íbúar geta notað rafmagnsofn en Almannavarnir ítreka að hver eign má aðeins notast við einn rafmagnsofn. Rafkerfið þolir ekki meiri notkun. Ef öll setja ofna í gang í einu getur kerfið slegið út. Því er mikilvægt að íbúar fylgi fyrirmælum og noti aðeins einn rafmagnsofn til kyndingar.
Í ljósi þess að heitt vatn er farið af á Suðurnesjum þarf að grípa til lokana víða hjá sveitarfélögunum, þar til varalögn kemst í gagnið. Skrifstofur Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja, Markaðsstofu Reykjaness og Reykjanes Geopark eru því lokaðar á morgun, föstudaginn 9. febrúar. Hægt er að senda tölvupóst á starfsmenn en upplýsingar um netföng þeirra er að finna á heimasíðum viðkomandi stofnanna.