fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Nýsköpunarþing í Reykjanesbæ – Fullnýting til framtíðar

Nýsköpunarþing í Reykjanesbæ – Fullnýting til framtíðar – verður haldið í Andrews leikhúsinu á Ásbrú fimmtudaginn 10. október frá kl. 17:00 – 19:00.Yfirskrift þingsins er FULLNÝTING TIL FRAMTÍÐAR og leitað verður svara við því hvernig byggja megi virðisaukandi starfsemi ofan á frumframleiðslu eða grunnþjónustu og skapa þar með fjölbreyttari og betur launuð störf. Styrkleikarnir sem unnið verður með tengjast orku, iðnaði, sjávarfangi og samgöngumiðju. Fjallað verður um þau tækifæri á Reykjanesi sem byggja á styrkleikum svæðisins og áhersla lögð á 3 stoðir: Auðlindagarðinn, Keflavíkurflugvöll og tæknibyltingu í flutningum.
• Kynnt verða skýr dæmi um fullnýtingu í kringum orkuframleiðslu, þar sem hiti, sjór og vatn eru nýtt til frekari framleiðsluþróunar auk raforkuframleiðslu.• Kynnt verða skýr dæmi um hvernig auka má virði sjávarfangs með fullvinnslu hráefnis sem áður var hluti af úrgangi.• Kynnt verða skýr dæmi um hvernig hráframleiðsla í iðnaði getur leitt af sér frekari virðisaukningu með framleiðslu á vörum úr hráefninu og þróun virðiskeðjunnar.• Þá verður sýnt fram á hvernig úrgangur/útblástur einnar verksmiðju er gerður að mikilvægu hráefni næstu verksmiðju til að breyta „mengun“ í  vistvæna, virðisaukandi vöru. • Farið verður yfir gríðarleg tækifæri í ferðaþjónustu og flutningum og kynntir kostir þess að samgöngufyrirtæki á sjó, landi og í lofti, nýti sér aðstöðu á svæðinu til frekari útfærslu á þjónustu sinni.Annar hluti þingsins er Auðlindagarðsdagurinn sem Íslenski Jarðvarmaklasinn og Blái Demanturinn hafa tengt saman við Nýsköpunarþingið. Í anddyri Andrews verða t.d. settir upp básar í tengslum við hann. Þingið og Auðlindagarðsdagurinn er ákaflega metnaðarfullt verkefni sem snýr að uppbyggingu atvinnulífs á Suðurnesjum. Horft er á allan skagann sem eitt atvinnusvæði með óteljandi möguleikum. Aðalatriðið á þessu þingi er að sýna þessar risa stoðir í atvinnulífinu á Reykjanesi; hvernig þær virka saman, hvaða gríðarlegu tækifærum við búum yfir og hvernig við förum að því að nýta þau á réttan hátt fyrir svæðið og landið allt.