Strætó ekur alla páskadagana
Strætó mun aka alla páskadagana. Yfir hátíðisdagana verður ekið samkvæmt hefðbundinni sunnudags áætlun.
- Á skírdag, fimmtudaginn 24. mars, verður ekið samkvæmt sunnudagsáætlun.
- Föstudaginn langa, 25. mars, verður ekið samkvæmt sunnudagsáætlun.
- Laugardaginn 26. mars verður ekið samkvæmt hefðbundinni laugardagsáætlun.
- Á páskadag, sunnudaginn 27. mars, verður ekið samkvæmt sunnudagsáætlun.
- Annan í páskum, mánudaginn 28. mars, verður ekið samkvæmt sunnudagsáætlun.
Allar nánari upplýsingar má fá á strætó.is
Ef óskað er nánari upplýsinga um þá er Jóhannes S. Rúnarsson, framkvæmdastjóri, talsmaður fyrirtækisins. Netfangið hans er johannesru@straeto.is og síminn er 660 1488.