fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Súpufundur með fyrirtækjum í Grindavík haldinn í Reykjanesbæ

Boðið verður upp á súpufund fyrir fyrirtæki í Grindavík í hádeginu á morgun, fimmtudaginn 7. desember þar sem fyrirtækjum gefst kostur á því að hittast og eiga samtal en ýmsir sérfræðingar hafa verið boðaðir til fundarins

Fannar Jónasson bæjarstjóri verður á fundinum auk Sigurðar Kristmundssonar hafnarstjóra en einnig mæta á fundinn fulltrúar frá Vinnumálastofnun, Náttúruhamfarastofnun, Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja og tveir fulltrúar frá HS Veitum.

Fundurinn verður haldinn á Mariott hótelinu í Reykjanesbæ og hefst kl. 12:00. Opnað verður fyrir súpuna 11:40.

Eftir fundinn verður boðið upp á lögfræðilega ráðgjöf fyrir þau fyrirtæki sem þess óska á skrifstofum Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum að Skógarbraut 945 en til þess hefur verið ráðinn Guðjón Bragason gudjon@almannavarnir.is.