fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Þrjú fyrirtæki í Eldey á lista yfir 100 áhugaverð sprotafyrirtæki á Íslandi

Fjögur sprotafyrirtæki af Suðurnesjum eru á lista yfir 100 áhugaverð sprotafyrirtæki sem Frjáls verslun hefur nú birt.Þau eru Gagnavarslan, GeoSilica, Aware Go og Valorka. Þar af eru þrjú þeirra með aðsetur í frumkvöðlasetrinu á Ásbrú.GeoSilica sérhæfir sig í kísilheilsu og er í flokknum nýir sprotar, AwareGo sérhæfir sig í tölvuöryggisfræðslu og er í flokknum sprotar á stökkpallinum og Valorka í virkjun sjávarfalla  í flokknum sprotar í mótun.