fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Vaxtarsamningur Suðurnesja auglýsir eftir styrkumsóknum

Auglýst er eftir styrkumsóknum í Vaxtarsamning Suðurnesja á grundvelli samnings um framlag til byggðaþróunar á Suðurnesjum 2014.Styrkhæf verkefni eru þróunar- og nýsköpunarverkefni sem markvisst stefna að markaðssetningu nýrrar eða endurbættrar vöru eða þjónustu. Skilyrði úthlutunar er að viðkomandi verkefnifeli í sér samstarf þriggja eða fleiri fyrirtækja og falli að markmiðum samningsins sem og verklagsreglum um úthlutun.
Styrkir geta verið allt að 50% af styrkhæfum kostnaði einstakra verkefna, gegn mótframlagi þátttakenda. Skilgreining á styrkhæfum kostnaði, umsóknareyðublöð og aðrar upplýsingar er aðfinna á vefsíðu vaxtarsamningsins: vaxtarsamningur.heklan.is.
UmsóknarfresturMánudaginn 1. desember 2014, kl. 16:00.Umsóknum skal skila á netfangið vaxtarsamningur@heklan.is.Nánari upplýsingar veitir Björk Guðjónsdóttir verkefnastjóri bjork@heklan.is, sími 420 3288.
Viðtalstímar verkefnastjóraVerkefnastjóri Vaxtarsamnings Suðurnesja verður til viðtals fyrir umsækjendur á bæjarskrifstofum sveitarfélaganna sem hér segir:
Garður: Mánudagur 10. nóvember kl. 10:00 – 11:00.Sandgerði: Mánudagur 10. nóvember kl. 13:00 – 14:00.Grindavík: Þriðjudagur 11. nóvember kl. 13:00 – 14:00.Vogar: Þriðjudagur 11. nóvember kl. 11:00 – 12:00.