fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Fullt á kaffihúsakvöldi í Eldey

Það var fullt út að dyrum og frábær stemmning á kaffihúsakvöldi hönnuða í Eldey en þau verða reglulegur viðburður fyrsta fimmtudag í mánuði fram að jólum.Brynja Aðalbergsdóttir leikskólastjóri ssagðifrá mastersverkefni sínu „Viltu biðja jólasveininn um að gefa mér íslenskt nammi í skóinn?“ en þar segir af „kanamenningu“ í Keflavík og samfélagslegum áhrifum af setu varnarliðsins á Miðnesheiði á menningu og daglegt líf.Skemmtileg umræða skapaðist um umræðuefnið enda þekkja flestir sögur af „Vellinum“ og fróðlegt var að heyra um þau áhrif sem rekja má til veru þeirra á Suðurnesjum í hálfa öld. Áhugasamir geta nálgast verkefni Brynju á skemmunni eða á Bókasafni Reykjanesbæjar.Boðið var upp á kaffi, te og heimabakað á staðnum gegn frálsu framlagi og að loknum fyrirlestri voru vinnusmiðjur í Eldey opnar fyrir áhugasama.Næsta kaffihúsakvöld verður fimmtudaginn 4. október kl. 20:00.