fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Breytingar á skipulagi

Lögð er fram til kynningar verkefnislýsing vegna breytinga á svæðisskipulagi Suðurnesja 2008-2024 sbr. 2. mgr. 23. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
 
Breytingar felast í breyttri afmörkun vatnsverndarsvæða í Reykjanesbæ og nýs flugbrautarkerfis Keflavíkurflugvallar.
 
Verkefnislýsing er aðgengileg hér að neðan og á vefsíðum sveitarfélaga á Suðurnesjum.
 
Athugasemdum og ábendingum varðandi lýsinguna má skila til skrifstofu SSS eða á netfangið sss@sss.is. Æskilegt er að þær berist fyrir 20. ágúst 2018.
 
Samvinnunefnd um svæðisskipulag Suðurnesja
Ólafur Þór Ólafsson, formaður