Stafrænt forskot
Stafrænt forskot er safn af vefritum og ókeypis vinnustofum sem Nýsköpunarmiðstöð Íslands býður fyrirtækjum til að hjálpa þeim að hagnýta vef, samfélagsmiðla og aðra stafræna tækni í markaðsmálum og rekstri. Nýsköpunarmiðstöð Íslands býður íslenskum fyrirtækjum aðgang að hagnýtu og aðgengilegu námsefni um stafrænan rekstur og markaðssetningu.
Með stafrænu forskoti geta fyrirtæki, stofnanir og einstaklingar meðal annars:
- Mótað sér stafræna stefnu
- Tekið næstu skref í notkun samfélagsmiðla
- Stýrt auglýsingabirtingum á samfélagsmiðlum og vef
- Skipulagt og stýrt efnisframleiðslu fyrir vef og samfélagsmiðla
- Lært að hagnýta Google Analytics
Fyrsta skrefið er að taka stafræna prófið sem og meta stafræna stöðu fyrirtækisins. Prófið tekur aðeins 5 mínútur.