fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Starfsgreinakynning á Suðurnesjum

Í gær fór fram starfsgreinakynning fyrir nemendur á Suðurnesjum í 9. og 10. bekk.
Markmið starfskynningarinnar er að efla starfsfræðslu fyrir elstu bekki grunnskóla á Suðurnesjum, stuðla að aukinni starfsvitund og skýrri framtíðarsýn en alls tóku um 60 einstaklingar og fyrirtæki þátt og kynntu fjölbreytt störf og nám sem liggur að baki fyrir áhugasömum nemendum.
Starfskynningin er liður í Sóknaráætlun Suðurnesja á vegum Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum og unnin í samstarfi Heklunnar, atvinnuþróunarfélags Suðurnesja og Fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar.