Vel sóttur fundur um Geofood verkefni
Reykjanes jarðvangur stóð á dögunum fyrir vel sóttum kynningarfundi um verkefnið „GEOfood“.
Á fundinum voru markmið verkefnisins kynnt og mögulegur ávinningur þátttakenda í því. Þátttakendur geta verið framleiðendur matvæla, veitingastaðir og ferðaþjónustuaðilar í sveitarfélögunum Reykjanesbæ, Grindavík, Vogum, Sandgerði og Garði.