Vetraráætlun Strætó á Suðurnesjum – Nemakort – 16. ágúst 2015-
Vetraráætlun tekur gildi þann 16. ágúst 2015 á Suðurnesjum. Nýju tímatöflurnar eru komnar á pdf staeto.is. Helstu breytingar eru eftirfarandi:
Leið 55
o Mun aka Hringbraut í síðustu þremur ferðunum á kvöldin í átt til FLE, þ.e. í ferðum kl. 19:23 frá Umferðarmiðstöð, kl. 21:55 frá Firði og kl. 23:55 frá Firði.
Í þessum ferðum bætast því við biðstöðvarnar Hringbraut/Knattspyrnuvöllur, Hringbraut/Norðurtún og Hringbraut/Melteigur.
o Biðstöðin FLE-Koma verður færð aðeins til á planinu fyrir utan FLE.
Leið 88
o Ferðir bætast við kl. 15:28 á fimmtudögum og föstudögum og kl. 14:28 á föstudögum frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Einnig mun bætast við ferð kl. 14:55 frá Grindavík á föstudögum.
Leið 89
o Biðstöðin „Þekkingarsetur Suðurnesja“ mun bætast við í Sandgerði á leið 89 í átt til Reykjanesbæjar.
Nemakort komin í sölu.
Nemakort fyrir nemendur með lögheimili á Suðurnesjum komin í sölu. Nemakortin gilda innan svæðis á Suðurnesjum og á höfuðborgarsvæðið. Gildistími þeirra er ein önn.
Nemakortin kosta 82.000,- kr., sem leggist inn á reikning Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, nr. 0142-26-11546, kt. 640479-0279.
Senda þar afrit af kvittun vegna millifærslu á netfangið verslun@straeto.is, ásamt nafni, kennitölu, vottorð um skólavist og mynd. Kortin verða send á lögheimili nemanda.
Nánari upplýsingar á straeto.is og í síma 540 2700