Viðhorfskönnun um gjaldtöku á ferðamannastöðum
Reykjanes jarðvangur og Markaðsstofa Reykjaness standa þessa dagana fyrir viðhorfskönnun meðal Suðurnesjamanna um gjaldtöku á ferðamannastöðum.
Hugmyndir um gjaldtöku á ferðamannastöðum hafa verið mikið í umræðunni undanfarna mánuði og skiptir íbúa svæðisins miklu máli enda margir fjölsóttir ferðamannastaðir á Reykjanesi.
Íbúar eru hvattir til þess að nýta tækifærið og taka þátt í könnuninni. Taka má þátt með því að smella á eftirfarandi tengil: https://www.surveymonkey.com/s/79V3XSQ