fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Starfsgreinakynning

Starfsgreinakynning fyrir nemendur í 8. og 10. bekk á Suðurnesjum er haldin árlega og er verkefnið fjármagnað af Sóknaráætlun Suðurnesja.

Markmið kynningarinnar er að efla starfsfræðslu og menntun grunnskólanemenda. Hún er einnig mikilvægur þáttur í því að auka starfsvitund og skerpa á framtíðarsýn ungs fólks.

Kynningunni er sérstaklega beint að eldri nemendum grunnskólanna, meðal annars vegna þess að hlutfall þeirra 10. bekkinga sem halda áfram námi að loknum grunnskóla er lægra á Suðurnesjum en annars staðar á landinu. Á kynninguna koma þó einnig nemendahópar úr Fjölbrautaskóla Suðurnesja.

Kynningin hefur tekist vel síðustu ár og skipuleggjendur hennar hafa fundið fyrir ánægju meðal skólanna sem taka þátt og þeirra sem taka að sér að kynna störf sín. Sérstaklega ber að þakka þeim einstaklingum og fyrirtækjum sem tekið hafa þátt í kynningunni en sömu aðilar hafa gert það ár eftir ár, jafnvel þó að þetta sé allt unnið í sjálfboðavinnu. Án þessarar miklu velvildar atvinnulífsins á svæðinu væri ómögulegt að halda kynningu sem þessa.

Tengiliður
Þekkingarsetur Suðurnesja
thekkingarsetrid.is
thekkingarsetur@thekkingarsetur.is