Mannamót markaðsstofanna 2015
Markaðsstofur landshlutanna setja upp vinnufundinn Mannamót í Reykjavík í annað sinn fyrir samstarfsfyrirtæki sín 22. janúar 2015 kl. 11 – 16 í flugskýli flugfélagsins Ernis á Reykjavíkurflugvelli.
Mannmót markaðsstofanna er hugsað sem kynningarvettvangur ferðaþjónustunnar á landsbyggðinni og tækifæri til að koma á fundum fagaðila í greininni. Tilgangurinn er að kynna landsbyggðarfyrirtæki fyrir ferðaþjónustuaðilum sem staðsettir eru í Reykjavík. Ísland hefur mikið upp á að bjóða og Mannamót hjálpa til við að mynda tengsl frá höfuðborginni fyrir á landsbyggðina. Gestum á Mannamótum gefst kostur á kynna sér það sem mismundi landshlutar eru að bjóða uppá með áherslu á vetrarferðamennsku.
Á Mannamót bjóðum við gestum að koma að hitta okkur:
Ferðaskrifstofufólki
Starfsfólki upplýsinga- og bókunarmiðstöðva
Leiðsögumönnum
Nemendum í leiðsöguskólanum og ferðamálafræðum
Starfsfólki í þjónustuverum flugfélaga
Sölu- og kynningarfólki flugfélaga
Ferðaskipuleggjendum
Starfsfólki í mótttökum hótela og gistihúsa
Fjölmiðlum
Opinberum stofnunum: Íslandsstofa, Ferðamálastofa, Atvinnu- og nýsköpunarráðuneyti, Innanríkisráðuneytið, Samgöngustofu, Isavia, kennurum í ferðamálagreinum ofl.
Samstarfsfyrirtæki Markaðsstofunnar sem vilja taka þátt skrái sig á thura@visitreykjanes.is ekki seinna en föstudaginn 16. janúar. Verð fyrir sýnendur er 10.000,- kr. á fyrirtæki. Fyrirkomulag Mannamóta er hefðbundið vinnsýningarskipulag en ekki eru fundabókanir. Hvert fyrirtæki verður staðsett á sama stað og önnur fyrirtæki úr sama landshluta og geta haft með sér standa, bæklinga og annað kynningarefni. Á Mannamótum bjóða markaðsstofur landshlutanna og þátttökufyrirtæki upp á léttar veitingar og smakk úr heimabyggð. Nánari upplýsingar verða sendar út í byrjun janúar en einnig getið þið haft samband Þuríði (thura@visitreykjanes.is). Við hvetjum öll fyrirtæki í ferðaþjónustu til að taka þátt í Mannamótum og nýta tækifærið til kynningar og sölu á sínu fyrirtæki.