Mikill áhugi á Reykjanesi á Mid-Atlantic
Icelandair stendur árlega fyrir ferðakaupstefnu fyrir birgja sína frá Ameríku og Evrópu sem allir eiga það sameiginlegt að selja Ísland. Kaupstefnan var haldin í Laugardalshöll í Reykjavík 6.-9. febrúar síðast liðinn og voru um 650 manns skráðir til þátttöku og um 250 erlendir kaupendur.
Markaðsstofa Reykjaness og Reykjanes jarðvangur tóku þátt í kaupstefnunni auk nokkurra fyrirtækja af svæðinu, en mikil aðsókn er í þátttöku á kaupstefnunni og komast færri að en vilja. Fyrirtækin sem einnig komu af Reykjanesinu og tóku þátt í kaupstefnunni voru Hótel Keflavík, Vitinn í Sandgerði, Bláa lónið, Smára hótel og Flugstöð Leifs Eiríkssonar auk fjölda annarra aðila sem selja ferðir á Reykjanesið.
Almenn ánægja var með þátttöku á kaupstefnunni og fundartímar vel nýttir. Mikið var um nýja kaupendur sem höfðu áhuga á að selja Ísland sem nýjan áfangastað í vöruframboði sínu en jafnframt var mikið um aðila sem voru að selja ferðir frá Ameríku til Evrópu og frá Evrópu til Ameríku sem voru að skoða möguleika á nokkra daga stoppi á Íslandi til að bæta inn í þær ferðir. Allir þessir aðilar höfðu mikinn áhuga á því sem Reykjanesið hefur uppá að bjóða, hvort sem það voru áfangastaðir jarðvangsins eða þjónustuframboðið.
Það eru spennandi tímar framundan í ferðaþjónustu á Reykjanesi.
Fleiri myndir frá Mid-Atlantic má finna inn á facebook síðu kaupstefnunnar: www.facebook.com/IcelandairMidAtlantic/