fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

654. fundur SSS 21. mars 2013

Árið 2013, er fundur haldinn í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum fimmtudaginn 21. mars á skrifstofu S.S.S., Skógarbraut 945, Reykjanesbæ.

Mætt eru: Gunnar Þórarinsson formaður, Jóngeir Hlinason, Sigursveinn B. Jónsson, Bryndís Gunnlaugsdóttir, Einar Jón Pálsson og Berglind Kristinsdóttir sem jafnframt ritaði fundargerð.

Stjórn S.S.S. hefur samþykkt breytingar á áður auglýstri dagskrá. Málum nr. 4-9 er frestað til næsta stjórnarfundar.

Dagskrá:

1. Ársreikningur Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum 2012.

Guðmundur Kjartansson endurskoðandi frá Deloitte kom á fundinn og fór yfir ársreikning Sambandsins ásamt endurskoðunarskýrslu. Ársreikningur Sambandsins vegna ársins 2012 samþykktur samhljóða.

2. Almenningssamgöngur.

Hafliði R. Jónsson frá VSÓ kom á fund stjórnar og kynnti niðurstöður útboðs á akstri til og frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar . Tilboðin voru opnuð s.l. mánudag.

Niðurstaða útboðs og val tilboðs

VSÓ Ráðgjöf hefur að beiðni Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum (S.S.S.) yfirfarið tilboð sem bárust í ofannefnt verk.

Alls bárust eftirfarandi tilboð frá sex bjóðendum:

  • Þingvallaleið ehf. – Netbus Iceland Ltd. 50,0%
  • Kynnisferðir ehf. 63,4%
  • SBK ehf. 38,3%
  • Bílar og fólk ehf. 38,5%
  • Hópbílar hf. 59,0%
  • Iceland Excursions Allrahanda ehf. 93,0%

Tilboð hafa verið yfirfarin og metin á grundvelli ákvæðis í grein 0.2.8 „Hæfi bjóðanda“ í útboðs- og samningsskilmálum.

Þingvallaleið ehf. skilar ekki inn umbeðnum gögnum samkvæmt grein 0.2.2 í útboðs- og samningsskilmálum.

Tilboð frá Iceland Excursions Allrahanda ehf. í hlutfallslega þóknun af fargjaldi er hærra en skilgreint hámark upp á 65%.

Staðfest er að tilboð frá SBK ehf. í hlutfallslega þóknun af fargjaldi er lægst.

Áður en tilboð frá SBK ehf. verður endanlega samþykkt er ráðlegt að tilkynna öllum bjóðendum ákvörðun um val á því tilboði. Frá því að sú ákvörðun er tilkynnt bjóðendum er ráðlegt að bíða í a.m.k. tíu daga þar til tilboð eru endanlega samþykkt.

Eignarhald og tengsl bjóðenda

Rétt er að benda á augljós eignatengsl tveggja bjóðenda sem buðu í þetta verkefni. Samkvæmt upplýsingum sem fram koma í gögnum bjóðenda eiga Kynnisferðir ehf. lægstbjóðanda, SBK ehf., að fullu. Í stjórn þessara fyrirtækja sitja sömu einstaklingar og einnig er ljóst af samskiptum á tilboðsferlinu að sami einstaklingur eða einstaklingar hafa unnið að gerð tilboða þessara aðila. Það er því álitamál hvort unnt sé að líta á þessi fyrirtæki sem einn og sama aðila með tilliti til þessa útboðs.

Kynnisferðir ehf., eigandi lægstbjóðanda, hafa haldið uppi kærum vegna þessa útboðs bæði til Kærunefndar útboðsmála og Samkeppniseftirlitsins. Jafnframt hafa Kynnisferðir ehf. gefið til kynna að þeir muni halda áfram akstri á þessari leið þótt þeir hreppi ekki samning um verkefnið. Það hlýtur því að vakna spurning um það hvort tengsl séu milli þessarar afstöðu Kynnisferða ehf. og tilboðs lægstbjóðanda.

Niðurstaða:

  • Fyrir liggur að hagstæðasta boð er frá SBK ehf. Að mati VSÓ Ráðgjafar er þó rétt að kanna rækilega hvort tengsl séu milli tilboðs SBK ehf. og afstöðu Kynnisferða ehf., eiganda SBK ehf.
  • Næst hagstæðasta tilboðið er frá Bílum og fólki ehf.
  • Lagt er til að könnuð séu áhrif eignatengsla milli SBK ehf. og Kynnisferða ehf. og hvaða áhrif þau geta haft á samningsgerð og mögulega framkvæmd samnings.
  • Lagt er til að S.S.S. staðfesti ofangreint val tilboðs með fyrirvara um áhrif eignatengsla og feli VSÓ Ráðgjöf í samráði við framkvæmdarstjóra S.S.S. að tilkynna bjóðendum þá ákvörðun.
  • Jafnframt verði framkvæmdarstjóra S.S.S. falið að ganga til samninga við SBK ehf. fyrir hönd S.S.S. á grundvelli útboðs- og samningsskilmála og tilboðs SBK ehf.

Stjórn S.S.S. samþykkir ofangreindar tillögunar og felur framkvæmdastjóra að fylgja málinu eftir.

3. Tölvupóstur dags. 08.03.2013 frá Hólmfríði Sveinsdóttur, vegna Sóknaráætlana.

a) Sóknaráætlun Suðurnesja 2013 – samþykkt af Stýrineti.

b )Drög að samningi um framkvæmd sóknaráætlunar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum árið 2013.

Stjórn S.S.S. fagnar því að Sóknaráætlun Suðurnesja hefur verðið formlega samþykkt. Stjórn S.S.S. hvetur til þess að þetta verklag verði notað áfram í samskiptum ríkis og landshlutasamtakanna.

Ekki eru gerðar neinar athugasemdir við drög að samningi sem liggur fyrir fundinum og áætlað er að skrifa undir í Þjóðmenningarhúsinu, föstudaginn 22. mars.

4. Önnur mál.

Ákveðið að næsti stjórnarfundur verði haldinn fimmtudaginn 4.apríl, kl. 17:00.

Fleira var ekki gert og fundi slitið kl. 17:55.

Gunnar Þórarinsson

Bryndís Gunnlaugsdóttir Sigursveinn Bj. Jónsson

Einar Jón Pálsson Jóngeir Hlinason

Berglind Kristinsdóttir