fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Hvað getum við gert?

Sveitarfélögin á Suðurnesjum ásamt Vinnumálastofnun, Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum, Atvinnuþróunarfélaginu Heklunni, Samtökum atvinnurekenda og stéttarfélögunum af svæðinu boða til íbúafundar í Stapa fimmtudaginn 17. september kl. 17.00.
Íbúar allra sveitarfélaga á Suðurnesjum eru boðnir velkomnir á fundinn í Stapa en fundinum verður einnig streymt á Facebook-síðu Víkurfrétta og sveitarfélaganna.
Markmiðið fundarins er að kynna fyrir íbúum svæðisins þær aðgerðir sem eru í gangi vegna þess atvinnuleysis sem nú er uppi en einnig að hvetja íbúa til þess að koma hugmyndum sínum á framfæri. Íbúum mun gefast kostur á að senda inn tillögur og spurningar. Fyrirkomulagið á því verður útskýrt í upphafi fundar.
Frummælendur:
  • Hildur Jakobína Gísladóttir, forstöðumaður Vinnumálastofnunar á Suðurnesjum
  • Berglind Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum
  • Guðbjörg Kristmundsdóttir, formaður VSFK
  • Guðjón Skúlason, formaður Samtaka atvinnurekenda á Suðurnesjum
  • Dr. Árelía Eydís Guðmundsdóttir
Fundarstjóri verður Róbert Ragnarsson.